Prentun 

 

Nýjasta tækni við prentun

Prentsmiðja Pmt er búin fullkomnasta búnaði sem völ er á til að prenta á allar gerðir plastfilmu, límmiða og límbanda.  Tækjabúnaður hjá okkur er í sífelldri endurnýjun og höfum við nýlega fest kaup á gríðarlega fullkominni prentvél sem hefur unnið til verðlauna vegna tækninýjunga.  Nýja vélin gerir okkur kleift að bjóða uppá fleiri möguleika við prentun, t.d. flettilímmiða, fólíugylling, laminering, prenta á límið á límmiðanum, auk þess sem við getum nú prentað allar gerðir af plastfilmum. Við prentum eingöngu með UV-litum sem gefa mesta mögulegan glans við prentun, á meðan flestir aðrir láta sér nægja að lakka með UV-lakki.  Það sem skiptir ekki minna máli er forvinnsla en þar erum við einnig með nýjustu tækni við gerð myndamóta.   Starfsfólk Pmt er með áratuga reynslu við forvinnslu og prentun.

 

Helstu prentmöguleikar

  • Hefðbundnir límmiðar úr pappír, plasti, silfri, gulli, ofl.
  • Límmiðar með prentun á lími - gagnlegt til að koma fleiri upplýsingum á miða.
  • Flettilímmiðar - í raun 2 límmiðar þar sem hægt er að fletta efri límmiðanum af.
  • Límmiðar með mismunandi happanúmeri - hægt að tvinna við flettilímmiða.
  • Skafmiðar.
  • Aðgöngumiðar.
  • Fólíugylling á allar gerðir límmiða og plastfilmu með mörgum mismunandi fólíum.
  • Stafræn prentun.
  • Prentum á allar gerðir af plastfilmum, niður í 12my þykkt.
  • Laminering - til að tryggja vernd á prentun og auka glans.

     

    Þjónusta

    Við leggjum metnað okkar í hágæða prentun, góða þjónustu og skjótri afgreiðslu. 

     

    Skil á verkefnum til okkar

    Að mörgu er að huga áður en prentverki er skilað „tilbúnu á diski“ til prentsmiðju.

    • Vistaðu skannaðar myndir í JPG, EPS eða TIFF-sniði.
    • Vistaðu myndir í CMYK og láttu þær fylgja með.
    • Ekki er nóg að senda myndir til prentunar sem eru af Internetinu þær eru oftast í 72dpi upplausn.  Myndir þurfa að vera lágmark 200dpi helst 300dpi í upplausn til að prentgæði séu ásættanleg.
    • Útlínaðu letur(fonta) eða láttu fylgja með verkinu.
    • Sendu lokapróförk með skjalinu í 100% stærð.
    • Notaðu helst þau forrit sem við mælum með eins og t.d. Illustrator, Freehand eða Indessign.
    • Hafðu ekki önnur skjöl á diskinum en þau sem á að prenta og alls ekki fleiri en eina útgáfu af hverju skjali.
    • PDF skjöl þurfa að vera vistuð með útlínuðum letri og athugið að skjal sé í réttri stærð.

    ATH. Leitaðu upplýsinga hjá prentsmiðju um hluti sem þú er ekki viss um áður en hafist er handa.  Eitt símtal getur sparað mikið fé og fyrirhöfn.

     

    Fáðu tilboð

    Hafðu samband við söludeild okkar í s: 567 8888 eða sendu okkur póst á pmt(hjá)pmt.is.

     

  • Karfan er tóm