Um Pmt
PMT framleiðir og selur allar gerðir límmiða, límbanda, stimpla, stimpilpenna og er söluaðili fyrir ýmsar plastvörur svo sem plastpoka af ýmsum stærðum og gerðum. Jafnframt er PMT með umboð fyrir heimsþekkt tæki fyrir stórmarkaði, kjötvinnslur, kjörbúðir, bakarí, fiskvinnslur, matvælaiðnað, sælgætisiðnað og fleiri greinar. Meðal helstu tækja eru: Ishida og Espera tölvu-og samvals vogir, Ulma pökkunarvélar, Henkovac vakúmpökkunarvélar, VideoJet bleksprautu- prentarar, TurboChef hraðbökunarofnar, iðnaðar- vaskar, Hallo verðmerkivélar, Zebra strikamerki- prentarar, Videx strikamerkilesarar og margt fleira. PMT hefur ávallt kappkostað að vera með gæðavöru og veita góða þjónustu og til marks um það er sérstök tækni-og þjónustudeild þar sem starfa þrír rafeindavirkjar. Hönnunardeild PMT sér um hönnun ýmis konar fyrirtækismerkja og auglýsingagerð. Öll áprentuð verkefni PMT fara í gegnum hönnunardeildina sem er búinn fullkomnum tækjum til allrar hönnunarvinnu. Hjá PMT starfa nú um 15 manns. Hafðu samband: Verslun Pmt er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 12.30 og 13.00 til 17:00. Eitt símanúmer fyrir allar deildir: 567 8888 og faxnúmer 567 8889. Tölvupóstur söludeild: pmt(hjá)pmt.is. Tölvupóstur tækniþjónusta: verk(hjá)pmt.is.
Hér erum við:
Starfsmenn:
|





