Frá einfaldri merkingu til öflugra prentlausna

Rétt merking skiptir máli, hvort sem um er að ræða einfaldan verðmiða, dagsetningu, sendingarmiða, vörumerkingar eða sjálfvirka merkingu í framleiðslu.

Þarfir fyrirtækja eru ólíkar og lausnin þarf ekki alltaf að vera flókin. Stundum nægir einfaldur stimpill eða merkibyssa, á meðan önnur verkefni kalla á límmiðaprentara, litaprentun eða sjálfvirka prentlausn sem verður hluti af framleiðsluferlinu.

Hér förum við yfir helstu leiðir í merkingum og prentun og hjálpum þér að átta þig á hvaða lausn hentar þínum rekstri.

1. Einföld merking – stimplar og merkibyssur

Fyrir einfaldar merkingar geta stimplar, verðmerkibyssur og dagsetningarbyssur verið bæði fljótleg og hagkvæm lausn.

Stimplar henta vel þegar merkja þarf dagsetningar, „best fyrir“, móttöku eða aðrar upplýsingar sem eru endurteknar reglulega. Þeir geta verið einföld lausn fyrir verslanir, lager, framleiðslu og aðra starfsemi þar sem ekki er þörf á sjálfvirkri prentun.

Verð- og dagsetningarbyssur henta þegar merkja þarf margar vörur hratt og örugglega. Með þeim er meðal annars hægt að merkja verð, dagsetningar og lotunúmer og velja mismunandi stærðir og gerðir miða eftir verkefninu.

Hjá PMT fást meðal annars OpenData og Hallo merkibyssur ásamt viðeigandi miðum, auk fjölbreytts úrvals stimpla.


2. Límmiðaprentarar fyrir lager, vefverslanir 
og vörusendingar

Þegar upplýsingarnar á miðanum breytast reglulega eða þörf er á strikamerkjum, sendingarupplýsingum eða vörumerkingum er límmiðaprentari oft næsta skref.

Minni Zebra og GoDEX límmiðaprentarar henta sérstaklega vel fyrir lager, vörumóttöku, verslanir, vefverslanir og fyrirtæki sem senda frá sér vörur.

Þeir nýtast meðal annars fyrir addressumiða og vörusendingar, strikamerki og vörunúmer, lager- og staðsetningarmerkingar, verð- og vörumerkingar og rekjanleika.

Hitaprentun eða prentun með prentborða?

Límmiðaprentarar geta annaðhvort prentað beint á hitamiða (thermal miða) eða notað prentborða (ribbon), til að flytja prentið yfir á miðann.

Hitaprentun er einföld og hagkvæm lausn fyrir merkingar sem þurfa ekki að endast til langs tíma, til dæmis sendingarmiða. Einfaldur í rekstri og ekkert blek.

Prentun með prentborða, eða thermal transfer, hentar þegar merkingin þarf að vera endingarbetri eða þegar prenta þarf á fjölbreyttari gerðir miða t.d. plastmiða.


3. Öflugri límmiðaprentarar þegar álagið eykst

Þegar prenta þarf mikið magn af miðum á hverjum degi getur verið tímabært að fara í öflugri límmiðaprentara sem er hannaður fyrir meiri og stöðugri notkun.

Stærri gerðir frá Zebra og GoDEX henta meðal annars fyrir lager og dreifingu, framleiðslu, apótek, verslanir og fyrirtæki þar sem merking er mikilvægur hluti af daglegum rekstri.

Þar getur skipt máli að prentarinn ráði við stórar rúllur, meiri prenthraða og mismunandi gerðir merkimiða og prentborða.

Val á miðanum sjálfum og prentborðanum skiptir líka máli. Merking sem þarf að þola raka, núning, kulda eða langan geymslutíma gerir aðrar kröfur en hefðbundinn sendingarmiði.

Þess vegna borgar sig að horfa ekki eingöngu á prentarann heldur velja saman prentara, límmiða og prentborða út frá notkun og þeim aðstæðum sem merkingin þarf að þola.



4. Litaprentun – þegar límmiðinn er hluti af vörunni

Stundum er límmiðinn miklu meira en upplýsingamiði. Hann er hluti af útliti vörunnar og vörumerkinu sjálfu.

Þá getur verið mikill kostur að geta prentað vandaða litamiða eftir þörfum innan fyrirtækisins.

QuickLabel litaprentarar henta fyrirtækjum sem vilja hafa meiri stjórn á framleiðslu límmiða, til dæmis þegar um er að ræða margar vörutegundir, mismunandi útgáfur, smærri framleiðslulotur eða upplýsingar sem breytast reglulega.

Litaprentun límmiða í eigin húsi getur meðal annars hentað fyrir snyrtivörur og húðvörur, sérvörur, matvæli, rannsóknarstofur og aðra framleiðslu þar sem útlit og gæði miðans skipta miklu máli.

Í stað þess að láta prenta mikið magn límmiða fyrirfram er hægt að prenta það magn sem þarf hverju sinni. Það getur minnkað lagerhald á tilbúnum límmiðum og auðveldað breytingar á hönnun, vörum eða upplýsingum.


QuickLabel litaprentarar

Prentaðu vandaða litamiða eftir þörfum innan eigin starfsemi. Hentar vel þar sem útlit, sveigjanleiki og margar útgáfur vörumerkinga skipta máli.

Skoða QuickLabel litaprentara

5. Prentun beint á vörur og umbúðir. Ekki þarf alltaf límmiða.

Með færanlegum REINER handprenturum er hægt að prenta texta, dagsetningar, tíma, númer og aðrar upplýsingar beint á fjölbreytt yfirborð.

Þetta getur verið hentugt þegar merkja þarf til dæmis umbúðir, kassa, plast, pappír, gler eða vörubretti (við) án þess að útbúa sérstakan límmiða.

Handprentarinn er færður að vörunni í stað þess að varan þurfi að fara í gegnum fasta prentstöð. Það gerir lausnina sérstaklega sveigjanlega fyrir fyrirtæki sem þurfa að merkja ólíkar vörur og umbúðir.

REINER jetStamp 990 getur til dæmis prentað einnar og tveggja lína merkingar og hentar einnig fyrir bogadregna fleti, en stærri jetStamp 1025 býður upp á stærra prentsvæði fyrir meðal annars kassa, bretti og umbúðir.

Reiner handprentarar

Færanlegir prentarar sem prenta texta, dagsetningar, lotunúmer og aðrar upplýsingar beint á vörur og umbúðir.

Skoða REINER handprentara

6. Sjálfvirk merking og prentun í framleiðslu

Í framleiðslu þarf merking oft að gerast sjálfkrafa og á sama hraða og vörurnar fara í gegnum framleiðslu- eða pökkunarlínuna.

Þar koma Videojet iðnaðarprentlausnir inn. Með þeim er hægt að prenta breytilegar upplýsingar beint á vörur og umbúðir, svo sem framleiðslu- og best-fyrir dagsetningar, lotunúmer, vörunúmer, rekjanleikakóða, strikamerki og QR-kóða.

Prentunin getur farið beint á plast, filmu, pappa, málm, gler eða aðrar umbúðir eftir því hvaða prenttækni og blek er valið.

Fyrir pökkunarvélar eru einnig lausnir eins og Videojet DataFlex, sem prenta beint á filmu í pökkunarferlinu, og kerfi sem geta bæði prentað merkimiða og sett þá sjálfvirkt á kassa eða pakkningar.

Þegar magnið er mikið og rekjanleiki skiptir máli getur rétt prentlausn þannig orðið órjúfanlegur hluti af framleiðsluferlinu.

Videojet prentlausnir

Prentlausnir fyrir sjálfvirka merkingu í framleiðslu og pökkun. Prentaðu dagsetningar, lotunúmer, strikamerki, QR-kóða og rekjanleikaupplýsingar beint á vörur og umbúðir.

Skoða Videojet prentlausnir

Hvaða merkingarlausn hentar þínum rekstri?

Það þarf ekki alltaf stærstu eða flóknustu lausnina. Rétta tækið ræðst fyrst og fremst af því hvað á að merkja, hversu mikið þarf að merkja, á hvaða yfirborð og hversu sjálfvirkt ferlið þarf að vera.

Stimpill eða merkibyssa getur verið rétta lausnin fyrir eitt fyrirtæki, á meðan annað þarf límmiðaprentara fyrir daglegar sendingar. Þegar kröfurnar aukast getur verið þörf á litprentun, prentun beint á vöruna eða sjálfvirkri prentlausn í framleiðslu.

Hjá PMT færðu allt frá einfaldri merkingu til öflugra prentlausna og við aðstoðum þig við að finna lausn sem hentar þínum rekstri.

Ertu ekki viss hvaða leið hentar? Segðu okkur hvað þú þarft að merkja og við hjálpum þér að finna réttu lausnina.


Algengar spurningar um merkingar og límmiðaprentara


Hvaða límmiðaprentari hentar fyrir sendingarmiða?

Fyrir sendingarmiða, vefverslanir og almenna lagermerkingu henta einfaldir hitaprentarar frá Zebra og GoDEX vel. Þeir prenta hratt á hitamiða og þurfa hvorki blek né prentborða.

Hver er munurinn á hitaprentun og prentun með prentborða?

Við hitaprentun er prentað beint á hitanæman miða (direct thermal prentun). Thermal transfer prentun notar prentborða (ribbon) og hentar þegar merkingin þarf að vera endingarbetri eða prenta þarf á aðrar tegundir miða.

Hvaða límmiðaprentari hentar fyrir lager?

Það fer meðal annars eftir magni og notkun. Minni Zebra og GoDEX prentarar geta hentað vel fyrir almenna lagermerkingu og sendingar, en þegar prentmagnið er mikið eða prentarinn er í stöðugri notkun getur öflugri iðnaðarprentari hentað betur.

Er hægt að prenta litamerkimiða í eigin fyrirtæki?

Já. Með QuickLabel litaprentara er hægt að prenta vandaða litamerkimiða eftir þörfum. Það getur hentað sérstaklega vel þegar margar vörutegundir eru í framleiðslu, prentlotur eru mismunandi eða útlit merkimiðans er mikilvægur hluti vörunnar.

Er hægt að prenta beint á plast, gler eða umbúðir?

Já. REINER handprentarar og ýmsar Videojet iðnaðarprentlausnir gera kleift að prenta beint á fjölbreytt yfirborð. Rétt lausn fer eftir efninu, magni, prentupplýsingum og aðstæðum.

Hvernig er best að prenta dagsetningar og lotunúmer á vörur?

Fyrir einföld verkefni getur stimpill eða dagsetningarbyssa verið nægileg. Þegar prenta þarf beint á vörur eða umbúðir getur REINER hentað, en í sjálfvirkri framleiðslu eru iðnaðarlausnir eins og Videojet yfirleitt hentugri.

Hvaða lausn hentar mér?

Það fer eftir vörunni, magni, yfirborði og því hvaða upplýsingar þarf að prenta. Starfsfólk PMT getur aðstoðað við að velja prentara, merkimiða, prentborða og aðra merkingarlausn út frá þörfum hvers fyrirtækis.

Finnurðu ekki svarið sem þú leitar að?

Hafðu samband við okkur. Við hjálpum þér að velja réttu lausnina fyrir þín verkefni. sala@pmt.is


Deildu þessari snilld og leyfðu öðrum að njóta


Ekki missa af.

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu fróðleik, upplýsingar um nýjar vörur og allskonar skemmtilegt fyrstur af öllum.

Vakúmvélar
Góð hráefni eiga skilið rétta meðferð