Skiltagerð og merkingar fyrir fyrirtæki, húsfélög og einstaklinga


 PMT framleiðir sérsniðin skilti og merkingar fyrir fjölbreyttar aðstæður. Við bjóðum meðal annars hurðaskilti, nafnaskilti, anddyristöflur, póstkassaskilti, bílastæðaskilti og merkingar fyrir fyrirtæki og iðnað.

Við aðstoðum við hönnun, efnisval, framleiðslu og uppsetningu. Hvort sem þig vantar eitt skilti eða heildarmerkingar fyrir húsfélag eða fyrirtæki finnum við lausn sem hentar verkefninu.
  Fá tilboð í skilti

Hurðaskilti

Vönduð skilti fyrir hús, íbúðir, skrifstofur og annað rými.

Versla
Póstkassaskilti

Skýr og snyrtilega merking fyrir póstkassa í fjölbýlum og fyrirtækjum.

Versla
Skilti á leiði

Skilti sem þolir íslenskt veðurfar á leiði, krossa og legsteina.

Versla
Húsfélög og sameignir

Samræmdar merkingar fyrir fjölbýli, frá anddyri og póstkössum til bílastæða og sameigna.

Versla
Anddyristöflur

Snyrtilegar yfirlitstöflur fyrir íbúðir og íbúa. Auðvelt að uppfæra þegar breytingar verða.

Versla
Bílastæðaskilti

Merkingar fyrir einkastæði, gestastæði, hleðslustæði og bílastæði fyrirtækja og húsfélag.

Versla

Sérsmíðuð skilti og leiðbeiningaskilti


Við framleiðum sérsmíðuð skilti og merkingar fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Hvort sem um er að ræða leiðbeiningaskilti, öryggismerkingar, upplýsingaskilti eða sérhæfðar iðnaðarmerkingar aðstoðum við við val á efni og útfærslu sem hentar notkun og umhverfi.
 
Leiðbeiningaskilti

Skýr skilti fyrir leiðbeiningar, uppl´syingar og öryggi á vinnustöðum í fyrirtækjum og opinberum rýmum.

Skoða
Sérsmíðuð skilti

Skilti framleidd eftir óskum viðskiptavina með fjölbreyttu efnisvali, stærðum, áletrunum og festingum.

Fá tilboð
Vélamerki og hlutamerki

Varanlegar merkingar fyrir vélar, búnað og íhluti. Framleiddar með upplýsingum, númerum og táknum eftir þörfum.

Skoða

Heildarmerkingar fyrir húsfélög og sameignir


 PMT býður upp á heildarmerkingar fyrir fjölbýlishús og sameignir. Við framleiðum samræmdar merkingar fyrir anddyri, póstkassa, íbúðir, geymslur og bílastæði, með áherslu á skýrt skipulag, vandað útlit og endingargóð efni.

Hvort sem um er að ræða nýbyggingu, endurnýjun eldri merkinga eða einstakar viðbætur aðstoðum við húsfélög við að finna lausnir sem henta húsnæðinu og þörfum íbúanna.

Við sjáum um hönnun og framleiðslu og aðstoðum við uppsetningu eftir þörfum. 


Skoða meira

Fá tilboð í skilti og merkingar

Lýstu verkefninu og við höfum samband.

Separate email addresses with a comma.



Aðrar sérhæfðar merkingar

Fjöldaskilti

Versla

Gæludýr

Versla

Eldvarnamerki

Versla 

Hlutamerki

Versla

Vélamerki

Versla

Sérsmíðuð skilti

+ Fá tilboð

Sérlausnir

Vantar þig sérlausnum eða ertu með stærra verkefni?

Við leggjum áherslu á vandað handverk og efni sem endast.

Hafðu samband og fáðu tilboð

Algengar spurningar


Hvaða skilti framleiðir PMT?

PMT framleiðir meðal annars hurðaskilti, nafnaskilti, anddyristöflur, póstkassaskilti, bílastæðaskilti, leiðisskilti, leiðbeiningaskilti og sérsmíðuð skilti fyrir fyrirtæki, húsfélög og einstaklinga.

Er hægt að fá skilti sérsmíðuð eftir eigin óskum?

Já, við framleiðum sérsmíðuð skilti eftir þörfum viðskiptavina. Hægt er að aðlaga stærð, efni, áletrun og útfærslu að verkefninu.

Framleiðir PMT skilti á leiði?

Já, við framleiðum leiðisskilti og merkingar fyrir legsteina. Meðal annars bjóðum við skilti úr innbrenndu áli sem henta vel til notkunar utandyra.

Hvaða skilti henta fyrir húsfélög og fjölbýlishús?

Við bjóðum samræmdar merkingar fyrir anddyri, póstkassa, íbúðir, geymslur, sameignir og bílastæði. Hægt er að fá einstök skilti eða heildarmerkingar fyrir húsfélög.

Er hægt að breyta nöfnum á anddyristöflum og póstkassaskiltum?

Já, margar af lausnum okkar eru hannaðar þannig að hægt sé að uppfæra nöfn og aðrar upplýsingar þegar íbúar flytja eða breytingar verða.

Hvaða efni eru notuð í skiltagerð?

Við framleiðum skilti meðal annars úr áli og plasti. Efnisval fer eftir notkun, útliti og því hvort skiltið á að vera innan- eða utandyra.

Er hægt að fá skilti fyrir fyrirtæki og vinnustaði?

Já, við framleiðum meðal annars hurðaskilti, leiðbeiningaskilti, vélamerki, hlutamerki og öryggismerkingar fyrir fyrirtæki og vinnustaði.

Hvernig fæ ég tilboð í skilti?

Þú getur sent okkur fyrirspurn í gegnum formið á síðunni. Gott er að taka fram hvers konar skilti þig vantar, áætlaða stærð, fjölda og aðrar óskir um útfærslu.

Áprentaðir bréfpokar

Margar stærðir


Versla

Stimplar

Allar gerðir


Versla

Fylgdu okkur á öðrum miðlum

Follow us