.

Viðskiptaskilmálar



Eignarréttarfyrirvari

Í samræmi við 42.gr. laga 75/1997 áskilur Plast miðar og tæki ehf. sér eignarrétt hins selda þar til kaupverð er að fullu greitt og áskilur sér rétt til að taka hið selda til baka eða selja það nauðungarsölu með vísan til 4.tl. 38.gr. sömu laga. Kaupandi hefur kynnt sér samningsákvæði þetta og samþykkir eignarréttarfyrirvara Plast miða og tækja ehf. með móttöku hins selda.

Greiðsluskilmálar

Greiðsluskilmálar eru staðgreiðsla við móttöku vöru nema samið hafi verið um annað. Sé samið um reikningsviðskipti þá fær kaupandi greiðsluseðil sendann í lok viðskiptatímabils. Eindagi greiðsluseðils er 15 dögum eftir gjalddaga. Eftir eindaga bætist við vanskilagjald og er þá viðskiptakrafan send áfram til innheimtu hjá innheimtufyrirtæki. Kostnaður vegna þessa er samkvæmt gjaldskrá viðkomandi innheimtufyrirtækis.

Skilaréttur

Athugasemdir þurfa að berast innan 7 daga frá dagsetningu reiknings, annars telst hann samþykktur. Vörur aðeins teknar til baka innan 14 daga frá úttekt gegn framvísun reiknings. Eingöngu er tekið við vörum sem eru í upprunalegum umbúðum og ónotaðar.

Ábyrgð á tækjum

Ábyrgð á nýjum tækjum er eitt ár, nema annað sé tekið fram. Reikningur er ábyrgðarskírteini, enda skal raðnúmer tækis tilgreint á reikningi. Notuð tæki eru ekki í ábyrgð nema annað sé tekið fram.

Ef tilkynning um galla berst á ábyrgðartíma sem ekki reynist af rangri meðferð, mun framleiðandi annað hvort laga eða skipta um tækið sem reynist gallað. Ábyrgð miðast við að komið sé með tækið til Plast miða og tækja ehf. Ef þjónustuaðili þarf að fara til kaupanda vegna ábyrgðarviðgerðar, þá skal kaupandi bera kostnað af því samkvæmt gjaldskrá Plast miða og tækja ehf. Eingöngu viðurkenndir þjónustuaðilar Plast miða og tækja ehf. hafa rétt til að framkvæma ábyrgðarviðgerðir. Ef aðrir þjónustuaðilar sjá um viðhald, eða um ranga meðferð er að ræða, þá fellur ábyrgðin niður. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á tæki.

Ef galli er á vöru ber Plast miðar og tæki ehf. ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á beinu, óbeinu eða afleiddu tjóni eða ágóðatapi s.s. rekstrartapi kaupanda eða taps sem kaupandi veldur þriðja aðila.

Plast miðar og tæki ehf. áskilja sér rétt til að selja vörur fyrir útlögðum viðgerðarkostnaði, sem ekki hafa verið sóttar 3 mánuðum eftir að viðgerð hefur farið fram.

Viðskiptaskilmálar um sölu og afhendingu prentverks

Eftirfarandi sölu- og afhendingarskilmálar Plast miða og tækja ehf. (hér eftir nefnt félagið) gilda um sölu og afhendingu prentverks sem fyrirtækið tekur að sér fyrir kaupanda vöru nema sérstaklega hafi verið samið skriflega um annað.

Skilmálar þessir, þar á meðal undanþágur frá ábyrgð, varnir, réttindi og ábyrgðartakmarkanir, skulu gilda í hverskyns málarekstri gegn félaginu.

1. Tilboð og samningur

1.1 Tilboðið er bindandi í 14 daga frá tilboðsdegi.

1.2 Samningur telst vera kominn á og er bindandi við pöntun eða samþykkt pöntunar eftir atvikum.

2. Verð og verðgrundvöllur

2.1 Verð er alltaf gefið upp án virðisaukaskatts. Á reikningi er virðisaukaskattur færður sér.

2.2 Í verði eða tilboði er ekki innifalið:

• Aukavinna eða aukakostnaður, sem fellur til, ef í ljós kemur eftir gildistöku samnings, að frumgögn frá kaupanda eru ófullnægjandi eða gölluð.

• Aukakostnaður, sem hlýst af óskum kaupanda um breytingar eða viðbætur eftir gildistöku samningsins.

• Aukakostnaður, sem hlýst af seinkun eða öðrum orsökum, er rekja má til kaupandans.

• Endurnýjun á prentplötum. Félaginu er heimilt að endurgera prentplötur og reikningsfæra á kaupanda skv. verðskrá, telji félagið prentplötur ekki fullnægandi með tilliti til gæða.

3. Afhending

3.1 Vara telst afhent þegar hún er komin á umsaminn afhendingarstað.

3.2 Félaginu er heimilt að afhenda vöru, þegar hún er tilbúin, jafnvel þótt það sé fyrr en kveðið er á um í samningi.

3.3 Félagið skal svo fljótt sem auðið er láta kaupanda vita ef dráttur verður á umsaminni afhendingu. Verði kaupandi fyrir tjóni vegna dráttar á afhendingu getur hann krafist afsláttar sem skal þó aldrei nema meira en 20% af verði vörunnar. Dragist afhending verulega getur kaupandi rift samningnum.

3.4 Félagið ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á neins konar tjóni vegna seinkunar á afhendingu vöru sem rekja má til neðangreindra orsaka:

• Ófullnægjandi frumgagna frá kaupanda.

• Breytinga á verkinu eftir að vinna er hafin við það.

• Gáleysis eða ásetnings kaupanda eða manna á hans vegum.

3.5 Verði dráttur á umsaminni afhendingu af hálfu félagsins ber það ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á beinu, óbeinu eða afleiddu tjóni eða ágóðatapi s.s. rekstrartapi kaupanda eða taps sem kaupandi veldur þriðja aðila.

4. Upplagsfrávik

4.1 Félaginu er skylt að afhenda fullt upplag og sjá um að það sé í samræmi við pantað upplag að svo miklu leyti sem unnt er. Þó verða bæði kaupandi og félagið að sætta sig við 10% frávik til eða frá, sé verkið prentað í fjórlit eða vinnsla þess á annan hátt flókin og upplagið minna en 10.000 eintök. Sé upplagið stærra, má frávikið ekki vera meira en 5%. Hvað varðar aðra prentgripi, er áskilinn réttur til hæfilegra frávika með tilliti til eðlis prentgripsins, gæða og vandasemi í framleiðslu.

4.2 Félagið getur reikningsfært á einingarverði það magn sem umfram er og á sama hátt getur kaupandi óskað lækkunar á reikningi fyrir það magn sem uppá vantar í umsamið upplag. Í einingaverði í þessum tilvikum skal felast prentun, bókbandsvinna, pappír og önnur efni sem þarf til framleiðslu.

4.3 Þurfi kaupandi ákveðið lágmarksupplag, skal taka það fram skriflega við pöntun. Ef félagið getur ekki afhent lágmarksupplag, er kaupanda í sjálfsvald sett, hvort félagið skuli prenta viðbótarupplag kaupanda að kostnaðarlausu eða hvort hann tekur við upplaginu og fær afslátt á verði.

5. Greiðsla

5.1 Verð miðast við staðgreiðslu nema um annað sé samið.

5.2 Ef samið er um greiðslufrest skal kaupandi greiða vöruna eigi síðar en 15 dögum eftir að reikningur er gerður.

5.3 Félagið getur krafist að fá hluta eða allt kaupverð vörunnar greitt fyrirfram, áður en vinna við verkið hefst.

5.4 Sé greiðsla ekki greidd á réttum tíma er félaginu heimilt að krefja kaupanda um dráttarvexti og kostnað sem kann að falla til vegna innheimtuþóknunar.

5.5 Til tryggingar greiðslu hefur félagið rétt til að leggja hald á allar þær eigur kaupanda, sem eru í vörslu þess og selja þær til lúkningar skuldinni. Ef félagið hyggst beita framangreindum haldsrétti skal það tilkynna kaupanda skriflega um slíkt. Komi til þess að kaupandi greiði ekki skuldina í kjölfar framangreindrar tilkynningar er félaginu heimilt að selja eignirnar á hvern þann hátt sem það telur að sé hagstæðast hverju sinni.

6. Gallar

6.1 Félagið ber ekki ábyrgð á villum og göllum, sem kaupandi hefur ekki leiðrétt í próförk hvort sem um rafræna- eða pappírspróförk er að ræða.

6.2 Telji kaupandi vöru gallaða, verður hann að tilkynna það strax og ekki seinna en 10 dögum eftir afhendingu. Kaupanda ber jafnframt að sýna fram á galla vörunnar og fjölda gallaðra eintaka af heildar upplagi. Sé ekki tilkynnt um tjón samkvæmt framansögðu skal réttur kaupanda til þess að krefja félagið um bætur vegna gallans falla niður sökum tómlætis.

6.3 Sé tilkynnt um galla á vöru innan framgreinds frests er félagið skyldugt til og hefur rétt til bæta úr göllum, svo fremi það geti orðið innan hæfilegs tíma. Geti félagið ekki bætt úr göllum innan hæfilegs tíma getur kaupandi í þeim tilvikum krafist afsláttar á verði sem skal þó aldrei nema meira en 20% af verði.

6.4 Ef galli á vöru er þess eðlis, að varan verður ekki nýtt til þess, sem ætlað var, og úrbótum skv. grein 6.3 verði ekki komið við, getur kaupandi rift kaupunum.

6.5 Ef galli er á vöru ber félagið ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á beinu, óbeinu eða afleiddu tjóni eða ágóðatapi s.s. rekstrartapi kaupanda eða taps sem kaupandi veldur þriðja aðila.

7. Takmörkun ábyrgðar

7.1 Hamli óviðráðanlegar orsakir (force majeure) afhendingu er félagið ekki skyldugt til að standa við umsaminn afhendingartíma eða er bótaskylt þótt afhending dragist eða bregðist.

7.2 Það er í höndum kaupanda að sjá um að eftirmyndun, prentun og útgáfa alls efnis, sem kaupandi útvegar í prentgripinn, sé lögleg og leyfileg. Kaupandi ber þannig ábyrgð á því að öllum innlendum og erlendum lögum, reglum og hvers konar fyrirmælum yfirvalda um notkun á efninu sé fullnægt eftir því sem við á. Kaupanda er auk þess sem að framan greinir skylt að bæta og halda félaginu skaðlausu vegna allra krafna frá þriðja aðila vegna afleiðinga þess að kaupandi hefur ekki tryggt sér leyfi til notkunar efnisins eða notkun þess er að öðru leyti ekki í samræmi við lög og reglur.

8. Eignarréttur

8.1 Félaginu ber að skila kaupanda upprunalegu efni milliliðalaust. Óski kaupandi eftir því sérstaklega geymir félagið upprunalegt efni gegn geymslugjaldi.

8.2 Tillögur, skissur, teikningar, stýriforrit, umbrot, skeytingar, filmur, stansar, klisjur, myndamót, prentmót og prentplötur, sem félagið hefur unnið, eru eign þess og getur kaupandi ekki krafist þeirra, nema um annað sé samið sérstaklega.

8.3 Ef verkkaupi óskar eftir afriti af fullunnum prentgrip á tölvutæku sniði er félaginu heimilt að krefjast greiðslu fyrir.

8.4 Gögn, sem fjallað er um í grein 8.2, má einungis nota til vinnu fyrir kaupandann eða með hans samþykki. Félagið geymir þessi gögn að hámarki í eitt ár. Um geymslu á tölvutækum gögnum skal semja í upphafi verks.

9. Ýmis ákvæði

9.1 Félagið hefur á eigin ábyrgð rétt til að láta undirverktaka vinna verkið í heild eða að hluta. Allir undirverktakar eiga rétt á að bera fyrir sig öll ákvæði skilmála þessara eftir því sem við á.

9.2 Félaginu ber skylda til að fara með erindi og verkefni kaupanda sem trúnaðarmál og hindra sem frekast er unnt, að óviðkomandi hnýsist í verkefnið fyrir og í vinnslu þess.

9.3 Félagið bætir ekki tjón á þeim eigum kaupanda, sem eru í hans vörslu, svo sem handritum, skissum, teikningum, filmum, prentplötum, stafrænum gögnum o.þ.h. ef félagið er ekki að lögum ábyrgt fyrir tjóninu enda fái félagið það ekki bætt úr vátryggingu sinni. Fullunnin verk sem liggja hjá félaginu og ekki hafa verið sótt skv. samningi, eru á ábyrgð kaupanda og leysa verkkaupa ekki undan því að greiða verkið að fullu á meðan það er í vörslu félagsins.

9.4 Ekki skal koma til greiðslu vaxta af kröfum á hendur félaginu fyrr en frá uppkvaðningu dóms.

10. Eignarréttarfyrirvari

10.1 Í samræmi við 42.gr. laga 75/1997 áskilur félagið sér eignarrétt hins selda þar til kaupverð er að fullu greitt og áskilur sér rétt til að taka hið selda til baka eða selja það nauðungarsölu með vísan til 4.tl. 38.gr. sömu laga. Kaupandi hefur kynnt sér samningsákvæði þetta og samþykkir eignarréttarfyrirvara félagsins með móttöku hins selda.

11. Fyrning kröfu.

11.1 Undir öllum kringumstæðum skal félagið vera laust undan ábyrgð nema mál sé höfðað innan 1 árs frá þeim tíma er vara er afhent eða félaginu bar að afhenda hana.

12. Lögsaga

12.1 Hvers kyns deilumál sem upp koma á milli aðila og sem ekki tekst að leysa með samningum skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

13. Gildistími

13.1 Þessir viðmiðunarskilmálar voru samþykktir af stjórn félagsins í desember 2012 og taka gildi frá og með 1. janúar 2013. Félagið áskilur sér rétt til þess að breyta þessum skilmálum hvenær sem er.

14. Viðskiptavinur gefur upp netfang og símanúmer (samskiptaupplýsingar) í þágu viðskiptanna og samþykkir að samskiptaupplýsingunum verði miðlað til innheimtuaðila, komi til innheimtuaðgerða. Viðskiptavinur samþykkir auk þess að samskiptaupplýsingarnar verði hagnýttar almennt til samskipta við hann vegna innheimtu, þar á meðal með rafrænum innheimtuferlum. 


Gagnlegar síður