Videojet prentlausnir fyrir framleiðslu og pökkun
Videojet

Í matvæla- og sjávarútvegsframleiðslu er mikilvægt að merkja vörur skýrt, örugglega og án þess að hægja á framleiðslunni. Videojet er eitt af leiðandi fyrirtækjum heims í prentun og merkingum á framleiðslulínum og lausnir þeirra eru notaðar til að prenta upplýsingar beint á umbúðir og vörur á meðan framleiðslan er í gangi. 

Videojet kerfi geta prentað breytilegar upplýsingar eins og dagsetningar, lotunúmer, rekjanleikakóða og strikamerki beint á plast, pappa, filmu, málm og fleiri efni – jafnvel á mjög hraðri framleiðslulínu. 

Hvenær er Videojet lausn góð?

Videojet prentkerfi eru sérstaklega gagnleg þegar:

  • prenta þarf best fyrir / framleiðsludagsetningar

  • merkja þarf lotu- eða rekjanleikaupplýsingar

  • prenta þarf strikamerki eða QR kóða

  • framleiðslulínur eru hraðar og í stöðugum rekstri

  • prenta þarf beint á umbúðir eða kassa án límmiða

Lausnirnar eru hannaðar til að samþættast framleiðslulínum og prenta án snertingar á fjölbreytt efni og yfirborð. 

Helstu tækni Videojet

Videojet býður upp á nokkrar mismunandi prenttækni eftir notkun:

  • Bleksprautuprentun (CIJ) – prentar texta og kóða á flest efni, jafnvel á miklum hraða

  • Laser merkingar – varanleg merking án bleks

  • Thermal bleksparutuprentun (TIJ) – háupplausnar prentun t.d. fyrir QR kóða.

  • Prentun & Álíming – prentar og setur merkimiða sjálfvirkt á kassa og umbúðir 



1580 Prentari IP65

Prentar beint á vörur eða umbúðir – t.d. plast, filmu, pappa, málm eða gler.

Skoða

9550 miðaprent- og álímingarvél

Prentar og límir merkimiða sjálfvirkt á kassa eða pakkningar á færibandi.

Skoða

Dataflex 6530

Prentar með hita og prentborða - ribbon (Thermal Transfer) beint á filmur og pakkningar í pökkunarvélum.

Skoða


Nokkrar staðreyndir um Videojet

  • Yfir 60 ára reynsla í prentun á vörur og merkingum á framleiðslulínum 

  • Meira en 400.000 prentkerfi í notkun um allan heim

  • Lausnir notaðar í matvæla-, drykkjar-, lyfja- og iðnaðarframleiðslu

  • Kerfin prenta á milljarða vara daglega


Deildu þessari snilld og leyfðu öðrum að njóta


Ekki missa af.

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu fróðleik, upplýsingar um nýjar vörur og allskonar skemmtilegt fyrstur af öllum.